Lokahátíð mentorverkefnisins Vináttu verður haldin í Fjölskyldu– og húsdýragarðinum laugardaginn 9. apríl 2011 kl. 11-13.
Hátíðin verður haldin í „hvíta tjaldinu“ sem er við veitingarsöluna. Þegar þið komið í Húsdýragarðinn þá segið þið í afgreiðslunni að þið séuð í mentorverkefninu Vináttu. Það er ekki nafnalisti en við verðum að láta vita þannig að hægt sé að telja hversu margir mæta. Þið þurfið ekki að borga inní garðinn.
Hátíðin er fyrir mentora og börn – mentorar eiga að koma upplýsingum um hátíðina áleiðis til barnanna og mæta með börnunum á hátíðina. Endilega láta foreldra einnig vita af hátíðinni – foreldrarnir mega líka mæta.
Dagskráin hefst kl. 11:00 þar sem verkefnastjóri bíður alla velkomna. Því næsta verða skemmtiatriði bæði aðkeypt og heimatilbúin ?
Viljum biðja mentora um að hvetja börnin til að taka þátt í hæfileikakeppni á lokahátíðinni. Þau geta verið ein með atriði eða atriði þar sem mentor og barn troða upp! Til að skrá sig í hæfileikakeppnina þarf að senda nokkrar línur í tölvupósti til Elínar verkefnastjóra (vinatta@vinatta.is) – segja nafn/nöfn þeirra sem ætla að keppa og hvað viðkomandi ætlar að gera – syngja, dansa, segja brandara o.s.frv. Glæsileg verðlaun í boði.
Eftir skemmtiatriði og hæfileikakeppni verður boðið uppá grillaðar pylsur, djús og gotterí.
Mjög mikilvægt að allir mæti á lokahátíðina – þarna koma saman allir mentorar og börn á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Eftir hátíðina eiga mentorpörin svo eftir að halda sína eigin „kveðjustund“ þar sem þau gera upp samveruna og mentorárið.
Sjáumst laugardaginn 9. apríl
F.h. mentorverkefnisins Vináttu
Elín vinatta@vinatta.is og Björk bjorkth@kvenno.is