Markmið og hugmyndafræði
Hugmyndafræði
Meginmarkmið verkefnisins er að framhalds- og háskólanemendur vinni að velferð barna og öðlist víðtæka reynslu í samskiptum við börn. Mentorverkefnið Vinátta er samfélagsverkefni þar sem lögð er áhersla á gagnkvæman ávinning og hagsmuni í samfélaginu með því að börn og ungmenni læri af aðstæðum hvors annars.
Þetta byggir á þeirri hugmyndafræði að slík samskipti séu jákvætt innlegg í líf barnsins því að leiðsagnar-aðilinn/mentorinn verður barninu fyrirmynd. Tengslin sem myndast á milli mentors og barns gætu bætt við möguleika barnsins við mótun sjálfsmyndar og komið fram m.a. í auknum námsáhuga og árangri auk aukinnar lífsleikni.
Börnin eiga að:
- kynnast nýjum hugmyndum, aðstæðum og öðlast nýja þekkingu og reynslu.
- styrkja sjálfsmynd sína og auka félagsfærni.
- kynnast nýjum aðstæðum til skemmtunar.
- kynnast möguleikum til náms.
Mentorarnir eiga að:
- þroska félagslega færni og samskiptahæfni
- geta átt uppbyggileg samskipti við börn og forráðamenn þeirra
- geta lagað sig að margbreytilegum aðstæðum
- vinna að velferð barna og öðlast víðtæka reynslu í samskiptum við börn
- skipulagt samverustundir með grunnskólabarni eða hópi grunnskólabarna
Pingback: Umsókn um þátttöku í mentorsverkefni! | MENTORVERKEFNIÐ VINÁTTA