UM MENTORVERKEFNIÐ VINÁTTU

Mentorverkefnið Vinátta er þróunarverkefni rekið af Velferðarsjóði barna á Íslandi. Stofnandi og verndari mentorverkefnisins Vináttu er Valgerður Ólafsdóttir, M.A. í þróunarsálfræði. Verkefnið hóf göngu sína árið 2001 í samvinnu við Háskóla Íslands, Kennaraháskóla Íslands og tvo grunnskóla í Reykjavík, Austurbæjar- og Háteigsskóla.

Upphaf íslenska mentorverkefnisins má rekja til heimsóknar í Háskólann í Malmö, sem leiddi til heimsóknar Amos Carmeli frá Weizmann-vísindastofnuninni í Ísrael til íslands. Hann kynnti síðan verkefnið fyrir íslenskum skólamönnum.

Kjarni verkefnisins er að háskólastúdentar og menntaskólanemar veiti grunnskólabörnum stuðning og hvatningu. Áhersla er lögð á gagnkvæman ávinning svo og hagsmuni samfélagsins í heild af því að börn og ungmenni kynnist og læri af aðstæðum hvors annars. Nemendur fá tækifæri til að verða jákvætt afl og fyrirmynd í lífi grunnskólabarna og börnin mynda tengsl við þroskaðan, fullorðinn einstakling utan fjölskyldu sinnar.

Skólaárið 2001-2002 tóku 35 háskólastúdentar og jafn margir grunnskólanemendur þátt í verkefninu. Skólaárið 2002-2003 voru þátttakendur 144 og árið 2003-2004 voru þátttakendur 196. Það má því segja að verkefninu vaxi fiskur um hrygg og fari sífellt vaxandi.
Börnin sem taka þátt í verkefninu eru á aldrinum 7 – 10 ára.

Samverustundir grunnskólabarna og mentora eru þrjár klukkustundir í hverri viku allt skólaárið (frá lok septtember til lok apríl) og koma þátttakendur sér saman um að gera eitthvað skemmtilegt. Þessar stundir þurfa ekki að vera úthugsaðar og skipulagðar því samveran ein og sér er talin mikilvægust. Einu sinni í mánuði skilar háskólaneminn yfirliti um samskipti sín við barnið til umsjónarmanns síns og mætir þar fyrir utan í einstaklings- og hópviðtöl á tímabilinu.

Um sænska verkefnið Næturgalann má fræðast um hér, en einnig eru til margs konar svipuð verkefni um allan heim. Dæmi um eitt slíkt er Big brothers, Big sisters sem starfar í Bandaríkjunum og má fræðast um hér.

Comments are closed.