UMSÓKN

Umsóknarferlið er einfalt. Háskólanemendur þurfa að skrá sig í námskeiðið hjá nemendaskrá og sækja um þátttöku á heimasíðu verkefnisins. Betra er að skrá sig fyrst hjá nemendaskrá svo ekki þurfi að sækja um undanþágu frá árlegri skráningu. Þegar búið er að skila inn umsókn þá tekur við ferli sem felur í sér að meta hæfni umsækjenda. Í þessu mati felst m.a. að allir umsækjendur eru boðaðir í viðtal. Það er eftir viðtalið sem ræðst hvort viðkomandi hefur fengið heimild til þátttöku í verkefningu. Framhaldsskólanemendur verða undantekningalaust að skrá sig/velja námskeiðið/fagið. Kennari námskeiðsins í hverjum skóla fer yfir skráningu og metur hverjir eru hæfir til þátttöku. Þetta er m.a. gert með því að boða skráða nemendur í viðtal. Nemendur er taldir eru uppfylla allar kröfur og því hæfir til þátttöku fylla út umsókn á heimasíðu verkefnisins. Allir umsækjendur fá sent til sín bréf þar sem tilgreind er niðurstaða verkefnastjórnar.

Hér finnur þú meðmælaeyðublað

Umsókn fyrir mentora

Comments are closed.