Börn sem taka þátt í verkefninu eru á aldrinum 7-10 ára. Öllum börn á þessum aldri sem eru í þeim skólum sem verkefnið nær til fá umsóknareyðublað og upplýsingar um verkefnið heim til foreldranna. Foreldrum er boðið upp á að óska eftir mentor fyrir sín börn og foreldrar senda síðan umsóknir með barninu (eða beint) til baka. Ákveðnar reglur gilda um úrvinnsluna.
Ef umsóknir verða fleiri en hægt er að anna eins og reynsla þeirra í Malmö hefur sýnt þarf að velja úr umsækjendum. Í Malmö hafa þeir farið þá leið að biðja kennara að raða nemendum í sínum bekkjardeildum í forgangsröð varðandi það hversu mikilvægt kennararnir telja að mentor-verkefnið sé fyrir nemendur í bekknum. Listinn fer síðan til umsjónarmanns verkefnisins sem gegnir m.a. því hlutverki að raða saman mentorum og börnum. Hafa ber í huga að verkefni þetta hæfir ekki undantekningalaust öllum börnum.
Sem dæmi um undantekningar má nefna:
- Börn sem koma úr félagslegum aðstæðum þar sem styrkja þarf fjölskylduna með heildtækum félagslegum úrræðum.
- Börn sem vafi er á að geti nýtt sér samband af þessu tagi af einhverjum ástæðum.
Sem dæmi um börn sem ganga fyrir má nefna:
- Börn sem verða fyrir einelti.
- Börn sem virðast einangra sig eða blandast lítið í hópinn.
- Börn úr stórum systkinahóp eða einbirni.
- Börn sem eru illa læs á sín eigin mörk og annarra.
- Börn sem vantar annað hvort föður eða móðurímynd.
- Börn af erlendum uppruna sem gætu hagnast á að fá íslenskan aðila inní sitt líf til þess að öðlast betri innsýn í íslenska menningu og tungumál.
- Börn sem eru feimin og óframfærin.
Kennarar barnanna, námsráðgjafi skólans og skólasálfræðingar ásamt umsjónarmönnum verkefnisins sjá um að meta hvaða börn falla best að verkefni þessu.