VAL Á MENTORUM

Það er mismunandi frá ári til árs hvaðan umsóknir berast, þ.e. hverjir þátttökuskólarnir eru. Í ár koma umsækjendur frá Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík, Kvennaskólanum í Reykjavík, Menntaskólanum á Akureyri, Menntaskólanum í Borgarnesi, Borgarholtsskóla, Verkmenntaskólanum á Akureyri og Fjölbrautaskóla Garðabæjar, Flensborg og Verkmenntaskólanum í Neskaupstað.

Háskóla- framhaldsskólanemun stendur til boða að taka námskeiðið. Framhaldsskólanemar geta tekið þátt í verkefninu sem hluta af sínu námi en þeir þurfa að kanna hvaða forkröfur skólarnir gera.

Tenglar í framhaldsskólum fara yfir umsóknir í sínum skólum og taka viðtöl við mentora. Verkefnisstjóri fer yfir umsóknir mentora úr háskólunum.

Val á mentorum er mikilvægt ferli. Við valið þurfa eftirfarandi þættir að vera skýrir:

  • Aldur: Mentorar þurfa að hafa náð 18 ára aldri (sjálfræðisaldur)
  • Forkröfur skóla.
  • Skráning í viðeigandi námskeið við skólann.
  • Mentor þarf að skuldbinda sig út verkefnistímann (eitt skólaár)
  • Mentor þarf að vera ábyrgur.
  • Mentor verður að geta sett sig í spor barnsins sem hann tekur að sér.
  • Mentor þarf að vera þolinmóður og meðvitaður um að hann/hún er fyrirmynd barnsins.

Til að velja hæfa einstaklinga verða nemendur að fylla út “starfsumsókn”. Umsóknareyðublöð er að finna á heimasíðunni www.vinatta.is. Þar þurfa nemendur að gera grein fyrir hæfni sinni og áhuga á að sinna mentorhlutverkinu og tilgreina meðmælendur. Gott er að annar meðmælandi sé kennari við skólann sem þekkir nemandann vel. Ef kennari telur þörf þá eru umsækjendur kallaðir í einstaklingsviðtal. Í viðtalinu er hægt að nota eftirfarandi punkta:

  • Hafa umsókninni til hliðsjónar – kanna búsetu og/eða aðsetur til að auðvelda pörun
  • Skoða sérstaklega hvort umsækjandi hafi tíma – þetta eru 3 klukkustundir á viku!
  • Af hverju sóttir þú um/af hverju vilt þú taka þátt?
  • Ítreka ábyrgð og skuldbindingu
  • Minna á skipulag og samfellu (eru að hittast reglulega)
  • Af hverju telur þú þig vera hæfa/n til að vera mentor
  • Ef þú mættir velja – hvernig barn myndir þú vilja fá (stelpu, strák, erlendum uppruna o.sfrv.)
  • Er eitthvað sem þér kvíður fyrir að gera – og afhverju (t.d. hitta foreldra, ráða ekki við barnið, skilja ekki barnið)
  • Ræða um verkefnið og mentorhlutverkið  (verkefnið er erfitt og krefjandi, nauðsynlegt að vera hraustur og í andlegu jafnvægi)
  • Tala um trúnað og meðferð trúnaðarupplýsinga

Ofangreint ferli er nauðsynlegt til að tryggja val á þeim hæfustu sem gera sér grein fyrir því hvað felst í að vera mentor. Ef val á mentorum er vandað er verið að tryggja öryggi barnsins. Ekki er nóg að mentorar séu ábyggilegir og hæfir heldur þurfa þeir sérstaka þjálfun og undirbúning fyrir verkefnið. Góður undirbúningur mentora eykur líkur á að mentor og ungmenni myndi gott og farsælt samband. Mentor með óraunhæfar kröfur til sjálfs sín og barnsins getur auðveldlega orðið fyrir vonbrigðum og misst áhugann á þátttöku.

Comments are closed.